Archive for July, 2011
26.07 Austurríki / Austria
Saturday, July 30th, 2011Morguninn eftir partýið vöknuðu menn í mis góðu ásigkomulagi. Ákveðið var að fresta morgunmat, pakka saman og drífa sig bara beint af stað þar sem að tjaldstæðið minnti óþægilega mikið á salernisaðstöðu í yfirstærð. Næsta stopp var Peugeot umboðið í Klenova þar sem að nýr varahlutur beið okkar og var það planið að tjakka bílinn upp og skipta um. Sökum yfirdrifins hressleika Egils var ákveðið að gera þetta bara á morgun. Nú skyldi leggja í hann áleiðis til Vínarborgar í gegnum undur fagra Tékkneska sveit. Veðurguðirnir léku við Gunnar og Þór á meðan að Bakkus lék Egil grátt í aftursætinu. Hann sér þetta bara einhverntíman seinna. The morning after the party, men woke up in various conditions. We postponed breakfast, packed the gear and headed off. The camp site uncomfortably reminded us of a large toilet. Next stop was the Peugeot dealership in Klenova where a new spare part was waiting for us. The plan was to jack up the car and replace the old one. Because of Egils enormous good spirit we decided to skip that until the next day. We left Klenova and drove towards Wein through the beautiful rural Czech-Republic. The weathergods were kind to Gunnar and Thor while Bakkus was bugging Egill in the backseat. He´ll see this later.
Eftir að hafa hringsólað í Vín í leit að miðbænum var ákveðið að leggja bílnum til þess að átta sig almennilega á því hvar við værum staddir. Þegar við stigum út úr bílnum tókum við eftir því að mikla gufu lagði úr vélarrúmi bílsins. Bíllinn hafði ofhitnað við aksturinn sem var þó ekki stífur og rauð-appelsínugulur vökvi lak undan honum. Þór var að fara á taugum. Þrátt fyrir að við bættum á hann vatni og leyfðum honum að kólna tvisvar sinnum, hélt bíllinn áfram að ofhitna. Við komumst þess vegna ekki mikið meira en 10 mínútur áfram í senn. After driving in circles in Wien searching for the center we parked the car. We needed to know where we were. When we stepped out of the car we noticed a lot of steam coming from the engine room. The car had over heated though we hadn´t been driving that fast and some read-orange liquid was dripping from it. Thor was on the verge of a nervous breakdown. Even though we filled the radiator with water and let it cool down twice, the car kept on overheating. Because of this we could only drive on for ten minutes at a time.
Við höfðum gælt við að heimsækja Tobi og Ginu vini okkar sem búsettir eru Vín ef tími gæfist en nú lá beint við að hringja. Þau voru svo indæl að bjóða okkur gestaherbergi sitt eins lengi og við þyrftum á að halda. Við þáðum það með þökkum. Húsið er yndislegt. Það er stórt með stórri vinnustofu og fallegum garði í miðjunni. We had talked about it amongst us that it would be nice to visit our friends Gina und Tobi if we had the time but now it was an obvious thing to do. They were so kind to offer us to stay in their guestroom for as long as we needed. We accepted. Their house is wonderful. It is big with a big atelier and a beautiful garden in the middle.
Eftir miklar vangaveltur um það hvað væri nákvæmlega vandamálið með bílinn komumst við að því að viftumótórinn hafði gefið sig. Nú þarf bara að finna partasala sem selur svona hluti í Peugeot og vonast til þess að hann kosti ekki of mikið. Eftir langan leiðangur þeirra Egils og Tobi fundu þeir loks einn partasala sem átti eitt stykki eftir. Lánið lék við okkur. Við fengum hlutinn á 80 evrur í stað 180-200 sem að nýr hlutur kostar. Egill skipti um mótor og nú er Mud-Mobile aftur kominn í gagnið. Við eigum þó enn eftir að skipta um bremsu kaliberið sem keypt var í Tékklandi. After a lot of speculations about our car problem, we found out that the fan motor had died. Now we need to find a car part dealer that has these kind of parts for Peugeot and hope that it will not be to expensive. Egill and Tobi went to a lot of garages until they found one that had one last piece. We were in luck. We got the part for 80 euros instead of 180-200 (the price of a new one). Egill replaced the part and so the Mud-Mobile can continue its journey. We still need to replace the brake caliber we got in the Czech-Republic.
Þegar að þessi póstur er ritaður er 28 júlí. Við höfum sum sé verið í Vín í tvær nætur. Við ákváðum að drífa í því að skipta um varahlut í bílnum svo við gætum haldið ferð okkar áfram. Ekki vildi betur til en svo að það tók að helli rigna. Þvílíkt úrhelli. Ákveðið var að bíða það af sér og nota tímann í blogg og aðra tölvuvinnu. Það er nóg að gera. It is 28th of July when this post is written. We have been in Wein for two nights now. We decided to change the part in a hurry so we can continue. Sadly it started to pour rain. Computer work and plenty of it.
Gestrisni Tobi og Ginu er mikil og erum við þeim einstaklega þakklátir. Við erum vel haldnir eftir veruna hjá þeim í fallega húsinu þeirra. Við munum kveðja þau með söknuði og vonumst til þess að fá að taka jafn vel á móti þeim þegar þau koma til Reykjavíkur. We are very greatful for Gina’s und Tobi’s hospitality and are in good shape after the stay at their beautiful home. We will miss them and hope that we can treat them as well when they visit us in Reykjavik.
Á hraðbrautinni frá Vín hefst svo fyrsta samstarfsverkefni Mud-Lab við local listamann þar sem að myndband verður gert við hart hraðbrautartechno Austurríska raftónlistarmannsins Binar (Tobi). On the Autobahn our first collaboration with an local artist begins as Mud-Lab starts working on a video for Binars hard techno track.
Við stefnum á að halda frá Vín eld snemma í fyrramálið 27.07 beint til Sofiu höfuðborgar Búlgaríu en þangað er c.a. 12 tíma akstur. Now the plan is to pack, load the car and be ready with everything before we go to sleep. That way we can be on our way early next morning. Next stop is Sofia, Bulgaria. 12 hour drive.
Klenova kastali / Klenova Castle
Thursday, July 28th, 2011Komum á rásstað við Klenova kastala rétt fyrir sunnan Prag í Tékklandi um kl. 04:00 aðfaranótt 24 júlí. Þar settum við upp tjaldið okkar og komum okkur fyrir. Við vorum nokkuð undrandi á því hversu fá lið voru á staðnum og voru þau öll í fastasvefni fyrir utan tvo ölvaða danska unglinga. Þegar að við vöknuðum skein sólin á okkur og undurfögur tékknesk sveit blasti við okkur. Fleiri lið voru tínast inn á svæðið og hittum við nokkur þeirra. Nálægir okkur á tjaldsvæðinu voru tveir norðmenn á gömlum slökkviliðstrukk. Vel fór á með liðunum og kom það í ljós að þeir voru á vegum Norska ríkissjónvarpsins að gera sex þátta sjónvarpsþáttaröð.
Um hádegisbilið var tjaldsvæðið orðið stappfullt af rallíbílum og voru þeir að tínast inn á svæðið allt fram að ræsingu sem fór fram klukkan fjögur um leið og Mongólskir listamenn höfðu flutt dans- og tónlistaratriði. Ofvirkur kynnirinn keyrði stemninguna upp úr öllu valdi og var mikill æsingur í liðinu. Liðin óku eitt á fætur öðru upp á ráspall og svo aftur beint upp á tjaldstæði. Mikið partý var svo haldið um kvöldið í kastalanum þar sem hljómsveitir og plötusnúðar skemmtu fólki og boðið var upp á mat og að sjálfsögðu mikið af bjór. Halda skyldi svo af stað morguninn eftir. Mud-Lab heldur til Austurríkis.
We arrived at the launch site next to Klenova Castle a bit south of Prag in Czech Republik around 04:00 in the night. We set up camp. We were a bit surprised to see so few teams wich were all fast asleep apart from two drunken Danish youngsters. When we woke up the sun was shining and the beautiful Czech countryside greeted us in all its glory. More teams were arriving on site and we started talking to some of them. Next to us on camp site was a Norwegian team driving an old firetruck. They are making a six series television series for the norwegian national television.
Around noon the camp site was packed with rally cars and they kept on coming until the launch wich started at four ´o clock the minute the Mongolian artists had finished performing. The hyper active presenter drove the good vibe through the roof and the teams were full of excitement. One by one the teams drove up on the launch platform and back to the camp site. A huge party was to be held in the castle in the evening were bands and dj´s entertained the crowd. Free food and of course plenty of beer. The plan is to head to Austria in the morning.
Hirtshals – Berlin
Sunday, July 24th, 2011Lögðum að landi í Hirtshals og brunuðum af stað. Komum seint um nótt til Berlínar þar sem Bryndís Hrönn tók vel á móti okkur og gistum við á gólfinu á Torsstrasse við hinar bestu aðstæður. Takk Bryndis og Gísli. Búnir að strolla aðeins um Berlin og núna er stefnan tekinn til Klenova kastalans í Tékklandi þar sem rallýið hefst formlega, strax og Egill er búnað laga pústið. Kort þar sem hægt er að fylgja slóðinni okkar er mjög væntanlegt á síðuna okkar.
The ferry landed in Hirtshals in Denmark and we wooshed away towards Berlin. We got there in the middle of the night and were greeted by our good friend Bryndis Hronn which let us stay in her place. Thanks Bryndis and Gisli. We took a walk in Berlin but are now on our way to Klenova castle in the Czeck Republik where the launch will be. Stay tuned for a map to see our current location.
Cheap Jeep
Friday, July 22nd, 2011Dagur 01 / Day 01
Friday, July 22nd, 2011
Jæja góðir hálsar.
Þá erum við loksins lagðir af stað. Það er undarleg tilfinning að sitja á Naust Lounge í Norrænu á leiðinni til meginlandsins hlíðandi á tóna Elton Johns cover söngvara fjórum árum eftir að hugmyndin að ferðinni kviknaði. Mikil undirbúningsvinna hefur staðið yfir í u.þ.b. ár og hefur hún komið okkur hingað. Okkur er efst í huga þakklæti til fjölskyldna okkar, vina og svo stuðningsaðila en án alls þessa fólks er nokkuð víst að við sætum ekki hér.
Síðustu dagar hafa verið sérlega hektískir og margt hefur gengið á. Þeir hafa liðið á ógnar hraða.
Á laugardaginn sem leið var vinnustofa Mud-Lab opin gestum og gangandi. Boðið var upp á myndlist, kaffi og vöfflur. Það var fremur fámennt en góðmennt og þægilegur andi var í húsinu. Nokkur verk seldust.
Eftir smá set-back með ræsingu í Reykjavík var brunað af stað út úr bænum um c.a. ellefu leytið um kvöldið svo að aka þurfti í einum rikk yfir nóttina.
Þökk sé öðlingunum í Cheap Jeep bílaleigunni hefur Mud-Mobile nú verið hækkaður og standsettur fyrir förina. Hann stóð sig með stakri príði á leiðinni til Seyðisfjarðar og komst Þór í rallýgírinn á lokasprettinum. Við náðum í röðina kl. 07:00 eins og til stóð.
Þreyttir en sáttir kveðjum við í bili um sömu mund og báturinn leggur að í Færeyjum.























